Hero Image

Um Úthlíð

Fjölbreytt ferðaþjónusta við hálendislínuna

Ferðaþjónusta við hálendislínuna. Þingvellir, Skálholt, Geysir og Gullfoss í næsta nágrenni klukkustundar akstur frá Reykjavík.

Við bjóðum:

  • Veitingastaðinn Réttina með spennandi matseðil sem byggir að mestu á rammíslenskum lambakjötstréttum
  • Gistingu í skemmtilegum sumarbústöðum sem eru griðarstaður allt árið
  • Tjaldstæði með aðgengi að heitu húsi með sturtum og góðri aðstöðu til að vaska upp
  • Þvottavél og þurrkara 
  • Risaskjá og hljóðkerfi, frítt WiFi og billiardborð
  • Hestaleigu
  • 9 holu golfvöll
  • Í næsta nágrenni er mikið um fallegar gögnuleiðir til fjalla, leitið ráða hjá heimamönnum sem eru jafnan á svæðinu
  • Kirkju með frábærri aðstöðu til andlegrar iðkunar, allra helgiathafna og fyrir skírn, fermingu og brúðkaup

Verið velkomin í sveitaparadísina í Úthlíð þar sem flestir finna sér eitthvað við sitt hæfi - góður matur, fallegt umhverfi, heitt vatn sem hægt er að lauga sig í og svo er hægt að njóta náttúrunnar í golfi, á hesti eða bara gangandi á tveimur jafnfljótum

Árið 2020 var Ferðaþjónustan Úthlíð valin sem "Cottage of the Year" frá ferðatímaritinu Travel and hospitality awards. https://thawards.com/

Hafa samband uthlid.is / uthlid.com / uthlid@uthlid.is /  +354 8444626/ +354 6995500 / + 354 4868770 / https://www.facebook.com/UthlidFerdathjonusta/

Úthlíð sögufrægur bær

Úthlíð hét fyrrum Hlíð hin ytri og var kirkjustaður í Biskupstungum

Kort af svæðinu

Orlofshúsasvæðiði í Úthlíð er sérlega vinsælt